
Aron CMS
frá Davíð & Golíat
Vefsíða er gluggi fyrirtækisins til heimsins og oftar en ekki fyrsta upplifunin sem væntanlegir viðskiptavinir og fjárfestar fá á fyrirtækinu.
Lesa nánar...


Þann 18. febrúar 2015 vannst fullnaðarsigur í þremur dómsmálum sem lögmannsstofan rak gegn Lýsingu hf. í héraðsdómi Reykjavíkur. Í öllum málunum var staðfest ólögmæti endurútreikninga Lýsingar hf. og skylda félagsins til að endurgreiða og leiðrétta lán umbjóðenda okkar í samræmi við okkar útreikningsaðferðir á grundvelli reglunnar um fullnaðarkvittanir.
Í einum dómanna var einnig staðfest að fyrirtæki geta, líkt og neytendur, átt rétt til endurgreiðslu verðbóta sem Lýsing hefur innheimt án heimildar í samningum sínum. Við hvetjum því sérstaklega fyrirtæki sem voru eða eru með bílasamninga hjá Lýsingu hf., sem voru að hluta til í íslenskum krónum, til að hafa samband við okkur tafarlaust í síma 546-2505 eða með tölvupósti á impact(hjá)impact.is, því hætta er á að rétturinn fyrnist.
Umrædda dóma héraðsdóms Reykjavíkur má finna hér:
Dómur héraðsdóms Reykjavíkur nr. E-821/2014